Settings
Light Theme
Dark Theme
Podcast Cover

Innra Ferðalag - Know Thyself

  • Enneagram leðin - Hver er ég með Sigriði Hronn

    17 OCT 2023 · Loksins kom Sigríður Hrönn í spjall til Söru Maríu. Hún er guðfræðingur og skrifaði bókina : Hver er ég ? Níu persónuleikalýsingar enneagrams. til þess að fara yfir eitt aðal áhugamál þerra sem er enneagramið og hvernig það getur haft djúp áhrif á líf manns. Ennegramm er aldagömul hefð sem dregin hefur verið fram í dagsljósið á liðnum árum. Lýsing á níu persónuleikamynstrum hjálpar lesandanum að upppgötva hver hann er, hvernig æska og uppvöxtur hefur mótað hann og aðra – og hvernig það birtist í tilfinningum, hugsun og hegðun. Bókin nýtist fólki sem er tilbúið að líta í eigið barm og vill vaxa og þroskast.Höfundur er guðfræðingur og hjúkrunarfræðingur með langa reynslu á sviði sálgæslu, ráðgjafar og kristinnar íhugunar, hér á landi og erlendis. Hún er höfundur fjögurra annarra bóka.
    1h 7m 23s
  • Þórarinn Ævarsson - Næstum til heljar

    9 JAN 2023 · Þórarinn Ævarsson, landsþekktur athafnamaður, segir erfiðasta tímabili ævi sinnar nú að baki. Þórarinn fór í dýpstu dali, svartnættið eitt blasti við og hann sá aðeins eina leið út. Þórarinn var orðinn háður ópíóðalyfjum, þjáðist af heiftarlegum höfuðverkjaköstum og þunglyndi en með hjálp hugvíkkandi efna öðlðist Þórarinn nýtt líf. Hann segir það samfélagslega ábyrgð sína að deila reynslu sinni.
    58m 10s
  • Sigurður Skúlason - Getnaður - meðganga - fæðing

    19 DEC 2022 · Getnaður-meðganga-fæðing. Þessi þrenning var honum svo hugleikinn að stappaði nærri þráhyggju. Hann taldi sig hafa innsýn í það að getnaðurinn hafi verið þrunginn örvæntingu, meðgangan full af ótta og fæðingin sjálf þvílík yfirþyrmandi átök að hún var stríð upp á líf og dauða, þar sem hann bar ósigur og fæddist lifandi dauður. Þessvegna var hann alla tíð að leita að lífinu eða réttara sagt hann var að leitað að leið til að fæðast aftur og fæðast þá almennilega. En hvernig getur fæddur maður fæðst ? Kanski endurfæðst ? Endurfæðingin lét á sér standa svo hann dó nokkrum sinnum í staðinn. Hann fór létt með það, því hann var svo gott sem dauður hvort eð var. Þessi smásaga sem Sigurður Skúlason leikar gaf út árið 2014 lýsir best hans persónulegu upplifun af notkun hugvíkkandi efna í meðferðarskyni.
    56m 50s
  • Denni - Reynslusögur #1

    29 MAY 2021 · Denna og Huldu var ráðlagt að hafa samband við Pétur og sjá hvort að hann gæti hjálpað þeim að vinna úr djúpri sorg sem hafði yfirtekið líf þeirra síðustu 7 árin, eftir að hafa verið viðstödd hræðilegt slys þar sem sonur þeirra dó fyrir framan þau. Denni fer aðeins yfir lífssöguna og deilir svo ítarlega sinni upplifun af hans innra ferðalagi. Þetta er fyrsta reynslusagan af mörgum sem við erum byrjuð að safna og munum deila hér. Góða ferð !
    1h 10m 24s
  • Pétur & Sara - Innra ferðalag

    10 FEB 2021 · Yndislega fallegt samtal Péturs og Söru. Þau velta fyrir sér vaxandi áhuga á innri ferðalögum, hugvíkkandi plöntulyfjum og óravíddum alheimsins. Pétur deilir reynslu sinni af Ketamine meðferðum í baráttunni við krónískan sársauka. Það eru 10ár síðan Pétur lenti í alvarlegu slysi þar sem hann lamaðist fyrir neðan mitti. Ketamine er talið “essential medicine” af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO (World Health Organization).
    44m 53s
  • Ólafur Aron & Sara María - Markþjálfun

    7 FEB 2021 · Markþjálfararnir Sara María og Ólafur Aron deila reynslu og hugmyndum sínum á markþjálfun, þarfakerfinu og hvernig öðlast má rými til vaxtar. @olafuraroninsight @forynja @fannar_mar www.evolvia.is
    1h 21m 1s
  • Helgi Jean & Ágústa Kolbrún - Gráa Svæðið

    2 FEB 2021 · Sara, Ágústa og Helgi fara enn og aftur á kostum. Þau fara meðal annars yfir gráa svæðið, tiltekt í tilfinningalegu geymslunum okkar, skiptidíla í samböndum og breyskleika mennskunnar.
    1h 19m 54s
  • Saga & Bjarki - Sannasta sjálfið

    8 SEP 2020 · Saga og Bjarki komu aftur til okkar í sjálfstætt framhald af síðustu heimsókn, við köfum dýpra og kynnumst þessu yndislega pari enn betur og þeirra háttum. Þau kynnast áður en Bjarki kemur út sem trans og stígur inn í sannleikann sinn, við tölum um það, óöryggi þeirra beggja í þessu flókna ferli og hvernig það er að upplifa sig í röngum líkama.
    1h 51m 25s
  • Nonni Óskarsson - Ástvinamissir og andleg heilsa

    30 AUG 2020 · Nonni blessaði okkur með nærveru sinni og kíkti í cacao. Hann ræðir dagbók brjálæðingsins, æskuna, áföll og hvernig það er að lifa með geðsjúkdóm.
    1h 2m 51s
  • Saga Sigurðardóttir - Við erum öll kynverur

    29 AUG 2020 · Saga kom til okkar og við ræddum sjálfsfróun, taboo, hjálpartæki ástarlífsins og margt fleirra. Ættum við að gera erótískar sögur að föstum lið? Látið okkur vita @Sóttkví_podject
    1h 17m 11s

Allir hafa sína einstöku sögu! "Takk fyrir Sóttkví podkastið - Þetta er svo frábært og vel gert hjá ykkur. Takk fyrir að deila ykkur með okkur" "Það er svo yndislegt...

show more
Allir hafa sína einstöku sögu!

"Takk fyrir Sóttkví podkastið - Þetta er svo frábært og vel gert hjá ykkur. Takk fyrir að deila ykkur með okkur"
"Það er svo yndislegt að hlusta á Sóttkví, fyllir mig svo mikilli ró, eina sem ég hlusta á"

Hlaðvarp þar sem allir eru heyrðir og allt fær að flakka.
Vilt þú vera heyrð/ur?
show less
Contacts
Information

Looks like you don't have any active episode

Browse Spreaker Catalogue to discover great new content

Current

Looks like you don't have any episodes in your queue

Browse Spreaker Catalogue to discover great new content

Next Up

Episode Cover Episode Cover

It's so quiet here...

Time to discover new episodes!

Discover
Your Library
Search