Settings
Light Theme
Dark Theme
Podcast Cover

Bókaspjallið | Borgarbókasafnið

  • Hrekkjavökuganga Borgarbókasafnsins 2020

    30 OCT 2020 · Aðstæður í samfélaginu gera að verkum að ekki er hægt að fagna hrekkjavökunni með hefðbundnum hætti í ár. Borgarbókasafnið býður fjölskyldum því upp á hrekkjavökugaman í formi rafrænnar bókmenntagöngu sem hægt er að fara saman, hvar og hvenær sem er. Sunna Dís Másdóttir les úr skuggalegum, draugalegum, já og stundum hreint út sagt hryllilegum bókum íslenskra barna- og unglingabókahöfunda. Lesið er úr eftirfarandi bókum: Bölvun Múmíunnar eftir Ármann Jakobsson Drauga-Dísa eftir Gunnar Theodór Eggertsson Dúkka eftir Gerði Kristnýju Eitthvað illt á leiðinni er, ritstjóri Markús Már Efraím. Höfundar sögunnar: Ronja Björk Bjarnadóttir og Matthea Júlíusdóttir Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkín Beck Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur
    37m 20s
  • Skrimslavarpid

    5 NOV 2019 · Í tilefni Hrekkjavöku hertu starfsmenn Borgarbókasafnsins upp hugann og ræddu helstu skrímsli hryllingsbókmenntar, allt frá Dracula og skrímsli Frankensteins til Pennywise Stephens Kings - með viðkomu hjá Greppikló og Litla og stóra skrímslinu.
    22m 37s
  • Hryllingshlaðvarpið

    25 OCT 2019 · Björn Unnar, Jóhannes, Maríanna Clara og Vala eru að komast í Hrekkjavökugírinn og spjalla um hrylling í ýmsu formi.
    22m 19s
  • Bókstaflegir titlar!

    4 OCT 2019 · Maríanna Clara og Björn Unnar rýna í „bókstaflega titla" - þar sem fólk lýsir bók án þess að nota nafnið - og giska á hvaða bók er talað um. Spyrill þáttarins er Esther.
    18m 50s
  • Byggt á bók

    27 SEP 2019 · Maríanna Clara, Björn Unnar, Ólöf og Ingi spjalla um myndir og þætti sem byggja á skáldsögum.
    27m 17s
  • Kvikmyndatónlistarspurningaleikurinn!

    19 SEP 2019 · Í tilefni þess að Hildur Guðnadóttir vann Emmy verðlaunin fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl tók Esther þá Inga og Jóhannes í örstuttan kvikmyndatónlistarspurningaleik. Esther spilaði stutt brot úr hinum ýmsu kvikmynda- og þáttatónlistarverkum og Ingi og Jóhannes giskuðu á höfund og þátt/kvikmynd.
    18m 43s
  • Skólabækur og fingrasetning

    13 SEP 2019 · Jóhannes Árnason, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir ræða um bækurnar sem framhaldsskólanemum er gert að lesa. Leslistarnir eru að einhverju leyti fjölbreyttir, eins og reynsla þáttastjórnenda. Á meðan þau yngri gerðu stuttmyndir byggðar á Galdra-Lofti lærði fulltrúi eldri kynslóða á ritvél.
    19m 13s
  • Hvað lásum við í sumar?

    7 SEP 2019 · Guðrún Baldvinsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir hittust í Kompunni og ræddu hvaða bækur þær lásu í sumarfríinu, en einnig um rósaræktun, vatnsræktun og sjálfsrækt(un). 
    19m 9s
  • Bækur að kvikmyndum

    22 JUN 2019 · Ingi, Björn Unnar og Jóhannes skeggræða (að Inga utantöldum) hvaða bækur væri gaman að gera að bíómyndum!
    24m 56s
  • Giskaðu á bókina

    15 JUN 2019 · Ingi spurði Guttorm og Esther spjörunum úr um daginn þegar Stjörnustríðið var tekið fyrir í hlaðvarpinu. Í þættinum í dag nær Esther fram hefndum þegar hún lætur Inga og Björn Unnar giska á bókatitla út frá aðeins sex orðum!
    14m 9s
Hlaðvarpsþættir úr smiðju Borgarbókasafnsins, bókaspjall, vangaveltur og ýmislegt fleira.
Contacts
Information

Looks like you don't have any active episode

Browse Spreaker Catalogue to discover great new content

Current

Looks like you don't have any episodes in your queue

Browse Spreaker Catalogue to discover great new content

Next Up

Episode Cover Episode Cover

It's so quiet here...

Time to discover new episodes!

Discover
Your Library
Search