Settings
Light Theme
Dark Theme
Podcast Cover

Lesgleraugun | Borgarbókasafnið

  • Fræðakaffi | Að vera biskupsfrú (Hildur Hákonardóttir)

    7 FEB 2022 · Upptaka frá Fræðakaffi í Spönginni, maí 2021. Hildur Hákonardóttir listakona og rithöfundur segir frá rannsóknum sínum á sögu löngu horfinna biskupsfrúa og fyrirkvenna, en árið 2020 kom út bók hennar "Hvað er svona merkilegt við það að vera biskupsfrú?" hjá bókaútgáfunni Sæmundi. Bókin kom út í framhaldi af rannsóknum Hildar á níu biskupsfrúm í Skálholti á árunum 1510-1623. Fáar beinar heimildir eru til um þær sjálfar, en Hildur hefur kafað ofan í texta sem varðveist hafa m.a. um eiginmenn þeirra, feður og syni og fundið þaðr ýmsan fróðleik. Saga kvennanna er dregin fram „úr myrkviði horfinna alda, enda er oftlega fjallað um konur fortíðar nánast eins og um væri að ræða vel þekkta, meinlausa dýrategund sem deilir landinu með körlum.“ (H.H.)
    43m 56s
  • Sviðsetning sannleikans | Sögustund / Opinn hljóðnemi

    6 MAY 2021 · Lokakvöld námskeiðsins Sviðsetning sannleikans sem haldið var á vegum Borgarbókasafnsins í Gerðubergi. Þátttakendur flytja sögur á sviði, sögur sem byggja á sannleikanum. Flytjendur: Ásrún Magnúsdóttir, Kara Hergils, Sigurður Arent, Bjargey Ólafsdóttir, Jóhannes Árnason, Eyþór Gylfason. Umsjónarmaður og kynnir: Halla Þórlaug Óskarsdóttir.
    38m 53s
  • Bergþóra og Bragi Páll | Húslestur - seinni hluti

    13 APR 2021 · Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson héldu húslestur í Gerðubergi 20. janúar 2021. Þar lásu þau upp úr eigin textum og annarra sem hafa veitt þeim innblástur í gegnum ferilinn. Þetta er seinni hluti þáttarins, en hér beina þau sjónum að nýjustu bókum sínum sem komu út á árunum 2017-2019 og textum sem veittu þeim innblástur þá. Bækurnar eru Flórída, Austur og Svínshöfuð.
    28m 2s
  • Bergþóra og Bragi Páll | Húslestur - fyrri hluti

    13 APR 2021 · Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson héldu húslestur í Gerðubergi 20. janúar 2021. Þar lásu þau upp úr eigin textum og annarra sem hafa veitt þeim innblástur í gegnum ferilinn. Þetta er fyrri hluti þáttarins, en hér fjalla þau um texta sem þau lásu á námsárum sínum og fyrstu bækur sínar.
    30m 17s
  • Sannar sögur og skáldaður sannleikur | Auður Jónsdóttir og Pétur Gunnarsson

    18 MAR 2021 · Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Pétur Gunnarsson ræða við Einar Kára Jóhannsson, bókmenntafræðing og útgefanda, um ævisagnaritun, skáldsögur, sannleika, Halldór Laxness, Rousseau, Proust, falsfréttir og ýmislegt fleira. Upptaka í Borgarbókasafninu í Grófinni í desember 2020. Umsjónarmaður hlaðvarps: Halla Þórlaug Óskarsdóttir.
    36m 1s

Í Lesgleraugunum verður varpað út upptökum af bókmenntaviðburðum safnsins, sem klipptar eru og skornar sérstaklega fyrir hlaðvarpið. Spennandi umræður um lestur, persónur, sjónarhorn, ævisögur, sannleika og skáldskap - allt sem...

show more
Í Lesgleraugunum verður varpað út upptökum af bókmenntaviðburðum safnsins, sem klipptar eru og skornar sérstaklega fyrir hlaðvarpið.
Spennandi umræður um lestur, persónur, sjónarhorn, ævisögur, sannleika og skáldskap - allt sem tengist bókmenntum - með mismunandi lesgleraugum í hvert sinn!
show less
Contacts
Information

Looks like you don't have any active episode

Browse Spreaker Catalogue to discover great new content

Current

Looks like you don't have any episodes in your queue

Browse Spreaker Catalogue to discover great new content

Next Up

Episode Cover Episode Cover

It's so quiet here...

Time to discover new episodes!

Discover
Your Library
Search