Settings
Light Theme
Dark Theme
Podcast Cover

Áttavitinn - Ferðafélag Íslands

  • 11 - Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ

    19 NOV 2018 · Gestur þáttarins í dag er Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands. Ólafur er með masterpróf frá Englandi í skipulagi byggða og bæja og BA-próf í sögu- og jarðfræði frá Háskóla Íslands. Ólafur er fyrrverandi alþingismaður en hann sat á þingi frá árinu 1995-2003. Og Ólafur var einnig Þjóðgarðsvörður Þingvalla frá árinu 2010-2017. Ólafur hefur ferðast víða og stundað fjallamennsku vítt og breitt um heiminn og klifið mörg háfjöll m.a. Mont Blanc, Kilimanjaro og Aconcagua hæsta fjall Suður Ameríku. Ólafur er brautryðjandi í íslenskri fjallamennsku, hann var m.a. í fyrstu skíðaleiðangrum Íslendinga yfir Grænlandsjökul og á Suðurpólinn.
    52m 36s
  • 10 - Næring á fjöllum

    15 OCT 2018 · Umræðuefni þáttarins er næring á fjöllum. Viðmælendur eru Anna Sigríður Ólafsdóttir, Auður Elva Kjartansdóttir og John Snorri Sigurjónsson. Öll hafa þau mikla reynslu af næringu og tengingu næringar og árangurs á fjöllum. Í þættinum er farið máltíðir, skipulagningu og samsetningu máltíða, orkuþörk, vökvastjórnun ofl.
    1h 7m 9s
  • 09 - Jóhann Kári Ívarsson - Gekk reglulega 22km til að komast í sturtu

    21 AUG 2018 · Gestur þáttarins er Jóhann Kári Ívarsson skálavörður í einum afskekktasta skála ferðafélagsins, Hrafntinnuskeri sem er í um 1.100m hæð. Jóhann hefur starfað sem skálavörður síðan 2012 þar af lengstum í Hrafntinnuskeri. Í viðtalinu förum við yfir lífið á hálendi Íslands með þeim ævintýrum og áskorunum sem því fylgir og þróun mála í Hrafntinnuskeri, til dæmis segir Jóhann frá því hvernig hann gekk reglulega um 22 kílómetra leið til að komast í sturtu. Jóhann er einnig einn af umsjónarmönnum Ferðafélags Unga fólksins og ferðast vítt og breitt um landið með unga fólkinu í FÍ.
    32m 49s
  • 08 - Halldór Hafdal Halldórsson - Vitavörður FÍ og lífið á fjöllum

    30 JUL 2018 · Dóri er einn af þúsundþjalasmiðum Ferðafélags Íslands. Hann segir hér m.a. söguna um hvernig hann var hætt kominn þegar hann féll útbyrðis á sjó um hávetur og hvernig reiðhjólakaup á netinu opnuðu leið fyrir hann í vitavörslu í Hornbjargsvita.
    30m 20s
  • 07 - Sigrún Valbergsdóttir - Ferðanefnd og úrval ferða hjá F.Í.

    12 JUL 2018 · Það finna allir eitthvað fyrir sig í ferðaáætlun FÍ. Úrval ferða er gífurlega mikið, allt frá léttum ferðum yfir í mjög krefjandi ferðir auk talsverðra nýjunga. Má þar meðal nefna fjallaskíðaferðir sem hafa verið kærkomin og vinsæl viðbót við úrval ferða FÍ
    34m 30s
  • 06 - Sigríður Lóa - Njótum ferðalagsins

    28 JUN 2018 · Gestur þáttarins að þessu sinni er fararstjórinn og sálfræðingurinn Sigríður Lóa. Hún hvetur okkur að njóta ferðlagsins og gleyma ekki að gefa okkur tíma til að njóta augnabliksins. Sigríður Lóa minnir okkur einnig á mikilvægi hreyfingar í baráttunni gegn algengra lýðheilsusjúkdóma á borð við þunglyndi og kvíða.
    47m 8s
  • 05 - Páll Guðmundsson - Ferðafélag Íslands

    14 JUN 2018 · Gestur þáttarins í dag er Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Ferðafélagið er áhugamannafélag með 8.000 félaga, með öfluga ferðáætlun árlega og rekur skála víðsvegar um hálendi Íslands.
    43m 4s
  • 04 - Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson - Fjallaskíði

    11 MAY 2018 · Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson eru miklir áhugamenn um fjallaskíðamennsku og settust niður með okkur og fræddu um þessa frábæru útivist sem fjallaskíðamennskan er.
    34m 16s
  • 03 - Hjalti Björnsson - Fjallavit, öryggi á fjöllum og umhverfið

    29 APR 2018 · Gestur okkar í dag er Hjalti Björnsson. Hann fer hér yfir þau mikilvægu grunnatriði sem fólk þarf að hafa í huga við útivist, hvað varðar eigið öryggi og annara og einnig hvernig er best að bera sig að við að koma sér af stað í göngu- og fjallamennsku.
    43m 26s
  • 02- Dalla og Matti - Ferðafélag barnanna

    15 APR 2018 · Hér er rætt við Döllu og Matta, umsjónarmenn Ferðafélags barnanna. Það sem gerir ferðir með ferðafélagi barnanna sérstakar eru að þær eru farnar á forsendum barnanna og sniðnar að þörfum þeirra.
    42m 18s
Áttaviti Ferðafélags Íslands. Fyrir allt áhugafólk um útivist og fjallamennsku.
Information
Author Pixelmedia
Categories Places & Travel
Website -
Email -

Looks like you don't have any active episode

Browse Spreaker Catalogue to discover great new content

Current

Looks like you don't have any episodes in your queue

Browse Spreaker Catalogue to discover great new content

Next Up

Episode Cover Episode Cover

It's so quiet here...

Time to discover new episodes!

Discover
Your Library
Search